Af hverju þarf sérpöntun að berast með 72 klst fyrirvara?
Vegna þess að allar sérpantanir þurfa að fara í gegnum tollinn og þær samþykktar þar áður en þær fara út í Leifsstöð eða um borð í vélarnar.
Hvar get ég skipt gölluðum vörum sem ég hef keypt um borð?
Annars vegar á aðalskrifstofum Icelandair, sömu byggingu og hótel Loftleiðir og hins vegar hjá þjónustuaðilum þá stendur það á vörunni.
Hvernig er ferlið ef skipt er hjá ykkur vöru?
Ferlið tekur viku. Þá er varan send til Keflavíkur á frílager þaðan er varan skipt og tollurinn fer yfir vöruskiptin og samþykkir þau. Þaðan er varan svo send til Reykjavíkur og viðkomandi látinn vita til að sækja hana.
Er ábyrgð á vörum sem keyptar eru í Saga Shop?
Eins árs ábyrgð er á vörum Saga Shop. Gegn framvísun greiðslukvittunar er hægt að skipta á aðalskrifstofum Icelandair alla virka daga á milli kl 13:00-16:00